Tuesday, March 20, 2007

Ég er ekki sérlega gáfaður

Hví ætlarðu þá að blogga?

-Bara.

Bara er ekkert svar.

-Bara af því að mér finnst gaman að skrifa alls konar bull, má ég það ekki?

Jújú, ætli það ekki. En hvað meinarðu með alls konar bull?

-Sko, það eina sem ég meina er að ef að læðist eitthvað hér inn sem flokkast undir skoðanir og pólitík, þá er það alveg óvart. Auk þess verða heimspekilegar vangaveltur áreiðanlega fátíðar.

-Hvað ætlarðu þá að skrifa? Tíðindi úr eigin lífi?

Sennilega ekki, konan er ágæt í því.

-Hvað þá?

Humm, góð spurning. Þetta verður kannski bara eina færslan. Jæja, við skulum sjá til.

6 comments:

Sigga Lára said...

Tekið skal fram að þessi leiðinlega efasemdarrödd kom alls ekki frá "konunni".

Ásta said...

Það er alltaf soldið erfitt að byrja

Þórunn Gréta said...

Herzlich wilkommen!

Gummi Erlings said...

Bienvenido, mi amigo bloguero! (mátti til með að bæta við tungumálaflóruna).

Magnús said...

Djöfull líst mér vel á þetta!

Árni Friðriksson said...

Takk, takk :)