tag:blogger.com,1999:blog-91418500183412299452024-03-13T03:28:18.995-07:00Músin segir mjámjáÁrni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.comBlogger46125tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-38133593173811124022009-02-26T11:17:00.000-08:002009-02-26T11:19:40.913-08:00Davíð farinn úr Seðlabankanum!Farið hefur fé betra.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-7892869135763613572009-02-25T01:39:00.000-08:002009-02-25T02:13:18.160-08:00Kæri DavíðJá, já, þú ert merkilegur maður. Já, já og umdeildur. Já, já, þú ert þú ert þú. Eða eins og þú orðar það svo vel: Ég, ég, ég, ég, ég, væl, væl, væl, ég, ég.

En ef ég lít á þetta út frá þinni aðferðafræði er auðvelt að komast að eftirfarandi niðurstöðu:

Aðeins þú og enginn nema þú væri ekki löngu búinn að segja af sér. Sættu þig við það. Þú ert seðlabankastjóri. Seðlabankastjóri seðlabanka sem brást, sama hvað þú segir. Seðlabankastjóri þarf því að fara. sem sagt. Þú þarft að fara. Þú átt að vera löngu farinn. Hvað ert þú þá að undra þig yfir því að það þurfi að eyða tíma í búa til ný lög til að bola þér í burtu. Það ert þú sem ert að eyða tíma þingsins.

Davíð, þú varst búinn að margvara ríkisstjórnina við. Þú vissir hvert stefndi nánast frá upphafi. Dabbi minn, þú ert seðlabankastjóri. Ekki er það nú sannfærandi seðlabankastjóri sem tekst ekki að sannfæra aðra. Þér mistókst hrapalega í þinu starfi. Það virðast allir sjá það nema þú. Eða eins og þú orðar það svo vel: Ég, ég, ég, ég, ég, væl, væl, væl, ég, ég.

Davíð, ég og ég og ég og ég erum búnir að fá nóg af þessu væli í þér. Ekki fara aftur í pólitík eftir seðlabankann. Þú ert búinn að skjóta þig nógu oft í bakið. Fáðu þér te og skrifaðu smásögu.

kveðja,

Músin segir mjámjáÁrni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-8676794784887170852009-02-24T05:12:00.001-08:002009-02-24T06:37:14.563-08:00Á Sprengidegi (étum, étum, étum okkur sadda...)Nú er ég mettur. Var að koma úr mánaðarlegum hádegissaumaklúbbi nokkurra gamalla MA-skólafélaga og snæddi þar til dæmis sardínur og hráar eggjarauðu. Í kvöld er það svo saltkjötið góða og baunirnar og í gær voru það bollur, svo að ekki léttist ég mikið í þessari viku.

En ég lofaði mér víst að punkta reglulega niður einhverju um menninguna sem ég upplifi.

Síðan um jólin hef ég lesið 3 bækur:

Skaparinn eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur.

Ég er hrifinn af smásögum Guðrúnar Evu. Litlar og laufléttar myndir úr samtímanum. Skaparinn er fyrsta skáldsaga hennar sem ég les og er bæði metnaðarfull og áhugaverð. Til að byrja með fannst mér ég vera að lesa Braga Ólafsson, þar sem undar legar aðstæður persónanna minntu mig á Gæludýrin og Sendiherrann. Ég las þessa bók af þónokkurri ánægju. Oft á tíðum komu upp skemmtilegar hugleiðingar og persónur voru áhugaverðar, en ég get ekki sagt að ég hafi fyllilega skilið þessa bók. Ég er ekki viss um að ég geti útskýrt um hvað hún er, mér fannst eitthvað vanta. Engu að síður langar mig að lesa meira eftir Guðrúnu Evu. Yosoy bíður betri tíma.

Rökkurbýsnir eftir Sjón.

"Rökkurbýsnir eru yndi til lestrar, aðgengilegar öllum lesendum, frásögnin spennandi og alþýðleg, ekkert nema rasssæri rekur mann á fætur. Góða skemmtun!" Sigurður Hróarsson, Fréttablaðið

Leyfið mér að umorða. "Rökkurbýsnir eru ekki yndi til lestrar, alls ekki aðgengilegar öllum lesendum, frásögnin óspennandi og alþýðleg, ekkert nema rasssæri kemur í veg fyrir að maður sofni. Góða nótt!" Árni Friðriksson, Músin segir mjá mjá.

Lesið frekar Íslandsklukkuna.

Vetrarsól eftir Auði Jónsdóttur.

Líka fyrsta bók sem ég les eftir Auði, sem er skammarlegt, þar sem hún var í MA um leið og ég. Vetrarsól er sennilega ein auðlesnasta bók í heimi þegar maður les hana strax á eftir Rökkurbýsnum. Hún er skemmtileg, spennandi og vel skrifuð. Það er til dæmis mjög lipurlega flakkað aftur í tímann. Plottið gengur líka alveg upp, en tónn bókarinnar breytist nokkuð í lok bókarinnar þegar kemur að uppgjöri og verður myrkari. Þessi myrki tónn sló mig svolítið út af laginu. En skemmtileg bók. Fólkið í kjallaranum bíður betri tíma.

Væntanlegt í menningarhorninu: Bækur: Bókaþjófurinn, Leikhús: RústaðÁrni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-62460852439171345662009-01-25T15:36:00.000-08:002009-01-25T16:06:30.959-08:00LokasýningarrottaÉg virðist vera kominn með lokasýningarkækinn. Hann lýsir sér þannig að einu sinni í mánuði klárast sýningar á einhverju sem mig langar að sjá og þá kippist ég óþyrmilega á síðustu sýninguna. Ég er reyndar mjög feginn þessum kæk, þar sem áður en hann kom upp var ég gjarnari á að missa af þessum sýningum, sem mér þótti oft miður. En að þessum sökum sá ég Makbeð í nóvember, Vestrið eina í desember og nú í kvöld sá ég Steinar í djúpinu.

Ókosturinn við að vera með þennan kæk, eru þeir að það þjónar litlum tilgangi að mæla með þessu sýningum við fólk. En ég get með góðri samvisku og af töluverðum kvikindisskap (við þá sem ekki sáu) mælt með þeim öllum.

Makbeð: Blóð, blóð, blóð, hasar og hrööööð atburðarrás þar sem Makbeð og lafðin stóðu ekki bara á bak við morðin, þau sáu um það algjörlega sjálf. Morðingi 1 og 2 úti í kuldanum. Mónólógar hvergi sjáanlegir í sennilega undirlegustu, en þeirri langeftirminnilegustu Makbeðsýningu sem ég hef séð.

Vestrið eina: Blót, blót, blót, hasar og stórhættuleg sýning þar sem gat allt eins átt von á að fá kartöflu í hausinn. Frábær leikur og fyndnara en andskotinn. Sé svakalega eftir að hafa ekki séð neitt annað eftir höfundinn. Sko, þessi kækur kemur allt of seint.

Steinar í djúpinu: Vá! Kom mér verulega á óvart. Var pínu skeptískur, verkið byggt á texta eftir ljóðskáld og þess háttar og ég átti von á einhverjum óræðum, ljóðrænum svipmyndum. Vá, hvað þú ert sjalló, Árni. Verulega heilsteypt verk sem varð manni á köflum hrein upplifun. Leikmynd góð, lýsing frábær og tónlistin meiriháttar. Og ég á bara ekki orð yfir textanum. :) Ólafur Darri, Harpa Arnardóttir og Árni Pétur að öðrum ólöstuðum frábær.

Svo er bara að sjá hvaða sýningu er að ljúka í febrúar.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-1790222223448889542009-01-15T06:20:00.000-08:002009-01-15T06:30:47.301-08:00Fimmtudagur, 15 jan kl. 13:50Friðrik sefur.
Inn í þvottahúsi mallar þvottavélin.
Uppþvottavélin í eldhúsinu reynir að halda í við hana.
Húsverkum er lokið og bara nokkuð snyrtilegt í litlu íbúðinni.
Monteverdi er lágt stilltur, en smýgur auðveldlega inn í undirmeðvitundina þar sem hann er ávallt velkominn.
Ég sit í hægindastól með bók, Skaparann eftir Guðrúnu Evu, og les.
Á Íslandi er kreppa.
Í lítilli stofu í Vesturbænum er lífið dásamlegt.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-51560215595698321942009-01-09T14:04:00.000-08:002009-01-09T14:44:40.309-08:00Nýtt ár, ný fyrirheitTil hamingju með árið.

Ég ætla að strengja nokkur áramótaheit.

1. Missa 5 kíló á árinu. Núna eftir jólin er ég orðinn 83,5 og ætla því að verða 70 og eitthvað.

2. Fara á grunnnámskeið í stærðfræði.

3. Blogga oftar en 2008. Strax kominn vel af stað með það.

4. Gera eitthvað menningarlegt á hverjum degi og blogga um það reglulega.

5. Reyna eins og ég get að skrá mig ekki á fésbók.

6. Vera góður.

7. Mótmæla allavega tvisvar.

8. Vera duglegur að skrifa (ekki bara blogg).

9. Vinna hlutverkið "Besti vinur Friðriks" af Sigguláru núna í feðraorlofinu.

10. Nota nýju, feitu, ítölsku matreiðslubókina sem við fengum í jólagjöf.

Menning dagsins: Las "Herra Pip" eftir Lloyd Jones fyrir og um jólin. Áhugaverð og vekur hjá manni áhuga á að lesa nú einhvern tímann heila Dickens-bók (hef byrjað á þeim nokkrum og kláraði reyndar Ólíver Twist). Í Herra Pip er það Great Expectations sem er stöðugt vitnað í og bókin byrjar sem frekar sakleysislegar æskuminningar og kemur svo nokkuð hressilega aftan að manni þegar líða tekur á hana. Gæti orðið nokkuð áhrifamikil kvikmynd, kannski ég gái fyrir næsta blogg hvort hún sé komin á imdb.
Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-42991959978517903042008-11-10T12:06:00.000-08:002008-11-10T15:25:57.542-08:00Mitt framlagMér líður vel.

Lífið er dásamlegt.

Knús á alla broslausa.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-82383285332804051562008-10-13T10:35:00.000-07:002008-10-13T10:43:33.935-07:00Til hamingju með 100 ára afmælið, Steinn Steinarr!LEIKSÝNING (úr ljóðabókinni "Ljóð" frá 1937)

Hin mikla leiksýning
var loks á enda.
Eins og logandi blys
hafði leikur minn risið
í hamslausri gleði
og friðlausri kvöl,
uns hann féll á ný
í skoplegri auðmýkt
til upphafs síns.
Það var lífið sjálft,
það var leikur minn.
Og ég leit fram í salinn
og bjóst við stjórnlausum fögnuði
fólksins.
En þar var enginn.
Og annarleg kyrrð hvíldi yfir
auðum bekkjunum.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-88149962287860436312008-10-07T12:46:00.000-07:002008-10-07T13:03:51.972-07:00Mér finnst gaman að kenna!Einhver nemandi minn hefur slysast inn á þessa aumingja síðu mína og kosið að túlka orð mín úr síðustu færslu á þann veg að mér finnist leiðinlegt að kenna. Þetta er ókosturinn við hið ritaða orð, það sést ekki alltaf hvenær maður er að reyna að vera fyndinn. En mér finnst sem sagt gaman að kenna og ég geng aldrei í bikíni. Dagsatt. Nú er ég ekki að reyna að vera fyndinn. Og nú þori ég aldrei að vera fyndinn aftur, eða nei... ok, alltaf þegar ég skrifa eitthvað sem mér finnst fyndið (gerist sjaldan, blogga sjaldan) skrifa ég svona: (HLÁTUR). Dæmi: Einu sinni áttu nemendur að þýða orðið "rhino" á enskuprófi. Flestir skrifuðu nashyrningur, einhverjir skrifuðu einhyrningur, þrír teiknuðu mynd af nashyrningi og tveir skrifuðu "þríhyrningur" (HLÁTUR).
Auðvitað finnst mér gaman að kenna!Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-21262167026218018662008-08-31T15:25:00.000-07:002008-08-31T15:46:24.166-07:00Hahahaha!Það er eingöngu Huggu Siggulárusystur að þakka að ég er nú aftur farinn að blogga. Hún á þessa bráðskemmtilegu færslu hér á undan, sem einhvern veginn endaði á blogginu mínu. Ég gekk semsagt ekki í bikiní í sumar (reyndar geng ég mikið í bikiní, en ég myndi aldrei segja frá því á netinu) og Gyða ku vera dóttir mín, ekki frænka.

Annars var sumarið svona hjá mér:

Missti tánögl: íbúfen og paratabsm 1 1/2 vika.

Missti hálskirtlana: Parkódín forte, 1 1/2 vika.

Fékk í bakið: Íbúfen, 1 vika.

Svo var restin reyndar alls ekki jafn lyfleg.

Nú er ég byrjaður að vinna á fullu. Kenna ensku, íslensku, goðafræði og leikritun í Hagaskóla, Það er nú bara helvíti skemmtilegt (reyndar er það alveg grútdjöfullleiðinlegt, en ég myndi aldrei segja frá því á netinu)

2. skólavika framundan. Nú ætla ég að vera duglegri að blogga. Allavega reyna. Að minnsta kosti einu sinni fyrir jól.

Sjáumst,

Árni

Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-70239983328929860482008-07-04T13:13:00.000-07:002008-07-04T13:16:22.708-07:00Sumar og (vonandi) sólNennir nokkur að lesa blogg hvort sem er á þessum árstíma.
Það held ég bara ekki.
Er komin á Austurlandið og verð hér eitthvað áfram. Á milli þess sem ég les góðar bækur og heimsæki fólk reyni ég að myndast við að passa Gyðu frænku. Það spáir sól og blíðu um helgina svo kannski ég vígi bikinið sem ég keypti mér í júní.
Kýki á póstinn minn reglulega svo það er í lagi að senda línu ef eitthvað er.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-49242467088362873162008-01-08T12:48:00.000-08:002008-01-08T13:13:35.738-08:00Gleðilegt nýtt ár!Ekki var nú jólafríið alveg eins og ég hafði óskað mér. Hiti, kvef og hausverkur. En ég náði þó að lesa jólabækurnar sem ég fékk:

Maður gengur með - Darri Einhversson

Nokkuð skemmtilega skrifuð og mjög fljótlesin meðgöngu- og fæðingarsaga.

Sögur úr Síðunni - Böðvar Guðmundsson

Þrettán samhangandi frásögur úr sömu sveit. Yndislega skemmtilegar flestar. Ekta bók fyrir sveitastráka eins og mig.

On Chesil Beach -Ian McEwan

Stutt, en rosalega vel skrifuð bók eftir uppáhaldið mitt. Stóð mig oft að því að hrista höfðuðið yfir snilldinni sem þarna var rituð.

Jarlhettur -Björn Th. Björnsson

Síðasta bók höfundar. Því miður ekki sérstaklega merkileg bók. Hef reyndar ekki lesið aðrar bækur eftir Björn, en mér finnst þessi bók ekki vera tilbúin, og velti fyrir mér hvort höfundur hafi yfirleitt ætlað sér að fá hana útgefna.

Og nú ræðast ég á bókaskápinn og kippi Magnus Mills með mér í bólið.

Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-11834179148131048932007-12-19T12:30:00.000-08:002007-12-19T12:33:56.844-08:00RhinoÍ nýafstöðnu enskuprófi áttu nemendur til dæmis að þýða orðið "rhino".

Flestir sögðu: "Nashyrningur"

Tveir teiknuðu mynd af nashyrningi, mundu ekki íslenska heitið.

Tveir sögðu: "Einhyrningur".

Og einn sagði: "Þríhyrningur."Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-52440203530057110332007-12-14T00:25:00.000-08:002007-12-14T00:30:26.048-08:00Síðasti Sopranos-þátturinn......er búinn.

Fínn endir.

Skil samt alveg fjaðrafokið sem varð eftir sýningu hans í Bandaríkjunum.

Það fyrsta sem ég hugsaði þegar þættinum lauk var: "Djö..."

En svo hugsaði ég bara: "Þetta var nú bara nokkuð mikil snilld."

Allavega: "Bless Tony! Takk fyrir skemmtunina!"Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-1737779125096811722007-12-13T12:50:00.000-08:002007-12-13T12:52:37.811-08:00Ég er með hnút í maganum.Í kvöld er síðasti Sopranos-þátturinn.

Gúlp.
Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-74728794927562716872007-12-11T10:20:00.000-08:002007-12-11T10:31:05.538-08:00Takk fyrir mig, Júlía og co!Stuttverkið "Á í messunni" eftir mig í leikstjórn Júlíu Hannam, var frumsýnt í Þjóðleikhúskjallaranum á sunnudagskvöldið og vá hvað mér fannst það skemmtilegt! Baldur Ragnarsson og Árni Hjartarson fóru hreinlega á kostum og ekki voru útvarpsraddirnar síðri, með Hjörvar Pétursson í fararbroddi. Seinni sýningin verður svo í kvöld og þá ætla ég að reyna að taka kameruna með, ef ég kemst.

Svo ætlar Liverpool að komast í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar í kvöld.

Já já, það er nú bara formsatriði.
Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-6364457461346387432007-12-02T08:41:00.000-08:002007-12-02T08:44:18.801-08:00Í gærkveldi skrapp ég á Þingvelli til að gubba......það er eitthvað að klósettinu okkar, niðursturtið virkar ekki nógu vel. En það virkar mikið betur í Valhöll.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-72946914222361088642007-11-30T14:14:00.000-08:002007-11-30T14:42:34.796-08:00Hátíðarlituð tónleikaröðÞað er aldeilis búið að vera mikið að gera hjá mér síðan síðast. Síðustu vikuna er ég búinn að fara á þrjá tónleika, tvö bekkjarkvöld, eitt bíó og svo er ég náttúrulega búinn að vera vinna eins og þræll. Og svo er konan mín bara ólétt heima og Gyða litla gubbandi.

Já, fyrir viku fór ég að sjá Jón Þorsteinsson og Hörð Áskelsson í Neskirkju. Það voru gullfallegir tónleikar, svo manni vöknaði um augu. Jón söng upp sálma af nýjum diski og nokkur verk eftir Bach. Ríkharður Örn mætti á sömu tónleika og ég og fór út í fýlu sýnist mér á dómnum hans í Mogganum. Allt vegna þess að ekki var ritað tónleikaprógramm. Og hvað? Átti það að hjálpa honum að vita númer hvað sálmurinn er í sálmabókinni?

Á laugardagskvöldið fór ég svo að sjá Beowolf með Róberti. VÁÁ! Þvílík upplifun! 3D snilld! Drífa sig að sjá hana í bíó. Það er örugglega ekkert varið í hana annars staðar. Þetta er sko alvöru ævintýri.

Á þriðjudagskvöldið var svo bekkjarkvöld hjá bekknum mínum í Hagaskóla. Tókst súpervel! Ég var mjög stoltur af "börnunum" mínum.

Svo fór ég á bekkjarkvöld hjá Róberti á fimmtudagskvöldið og þaðan fórum við Róbert að sjá aðventutónleika Kvennakórs Reykjavíkur. Amma hans Róberts var náttúrulega best og maður komst bara í ljómandi jólaskap.

Svo fór ég nú í kvöld á jólatónleika Vox Academica og það var nú barasta snilld. Þessi verk voru bara frábær. Gloria eftir Poulenc og jólakantata eftir Honnegger. Sinfóníuhljómsveit og flottur kór, einsöngvarar og lang lang flottasta Heims um ból sem ég hef heyrt, eða mun heyra.

Svo er jólahlaðborð með Hagaskóla á Þingvöllum annað kvöld. Best að fá sér einn bjór til að hita upp.

Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-49804809735860490572007-11-22T15:19:00.000-08:002007-11-22T15:37:30.708-08:00Fimmtudagar eru sjónvarpsdagar.
Brothers & Sisters: Nákvæmlega eins og Dallas, en ágætis afþreying.

House: Sá reyndar bara seinni helminginn og sennilega var þetta versti þátturinn frá byrjun, en Hugh Laurie er magnaður leikari.

The Sopranos: Miklir snilldarþættir. Og greinilega að klárast fyrst það er farið að drepa lykilpersónur. HBO eru algjörir snillingar þegar kemur að vel skrifuðu sjónvarpsefni. Sopranos, Six feet under og Deadwood(já og jafnvel sex and the city). Hvernig er þetta hægt? Six Feet búið, Deadwood búið(á reyndar eftir að sjá slatta), Sopranos næstum búið. Soldið sorglegt.

Yfirleitt horfi ég líka á 07/08, en missti af því núna. Þannig að ekki heimsækja mig á fimmtudagskvöldum :)
Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-28185508007376582352007-11-21T14:56:00.000-08:002007-11-21T14:58:26.450-08:00Þar með er það ákveðið!Ef ég næ 101 árs aldri ætla ég að sitja fyrir nakinn, fyrir Liverpool.

Liverpool vegna vona ég að ég verði löngu dauður.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-43501411167281771172007-11-20T15:33:00.000-08:002007-11-20T15:40:24.820-08:00Bronsið í Hagaskóla!Hagaskóli var í þriðja sæti Skrekks og má vera stoltur. Enda hæfileikaríkir og djúpt þenkjandi krakkar þarna á ferð. Krakkarnir upphugsuðu þetta atriði alveg á eigin spýtur, án hjálpar fullorðinna og það er með ólíkindum hvað sýningin var vel útfærð og flott. Greinilega vel haldið um taumana. Ég segi bara bravó og húrra fyrir Hagaskóla! Ég er stoltur!

Og nú bíður maður sko aldeilis spenntur eftir Bugsy Malone í leikstjórn Siggu Birnu. Forsmekkurinn segir að það verði magnað.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-79128884635040729382007-11-19T14:22:00.000-08:002007-11-19T14:49:20.527-08:00Weetos - Sykurminnsta súkkulaðimorgunkornið sem völ er á!Fyrirgefið þetta stutta blogg - ég bara VERÐ að drífa mig út í búð.Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-8599979386124508122007-11-18T09:24:00.000-08:002007-11-18T10:34:39.613-08:00Horft í vesturÍ kvöld horfði ég á aldeilis frábæra mynd, ástralska vestrann "The Proposition". Leikstýrt af 'ég man ekki hverjum' en handritið er eftir Nick Cave. Þessi mynd er falleg/ljót og hæg/spennandi. Hún er full af ofbeldi/á móti ofbeldi. Söguþráðurinn er næstum eins einfaldur og hægt er, en hún nær að vera ljóðræn og innihaldsrík. Og endirinn er ekkert annað en fullkominn. Leikurinn er líka frábær. Ray Winstone sérstaklega. Og Guy Pearce. Hinir ekkert slor. Þetta er mynd sem allir þurfa að sjá, nema yngri en 16 ára, viðkvæmir og ábyggilega flestar konur. Já, vestrinn er greinilega ekki útdauður. Deadwood-þættirnir eru mikil snilld og ég hlakka til að sjá bæði "3:10 to Yuma" og "Jesse James."Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com20tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-39664061690535973832007-11-17T13:34:00.001-08:002007-11-17T13:53:37.835-08:00Kominn aftur.Vonandi til að vera í þetta skiptið. Já, sumarið setti bloggið á hóld og svo byrjaði ég að vinna eðlilega vinnu í haust, eftir margra ára tjill og fyrir vikið hafa hellst yfir mig flensur af ýmsum stærðum og gerðum. Ég er nefnilega nákvæmlega eins og börn sem eru að byrja á leikskóla. Hef verið allt of lengi í sóttkví. Já, nú er ég byrjaður að kenna 8. bekk Hagaskóla, ekki bara ensku, heldur líka sögu, landafræði, lífsleikni og íslensku. Já, þetta er náttlega helvíti töff, en líka bara geðveikt kúl og skemmtilegt. Á degi íslenskrar tungu lék ég minn þátt úr sagnadagskrá Hugleiks fyrir umsjónarnemendur mína, sem síðan hófu að segja draugasögur í framhaldi af því, þannig að það var sko haldið upp á afmæli Jónsa með stæl! Reyndar las ég líka fyrir þau kafla úr "Fáfræðinni" eftir Milan Kundera um flutninginn á beinum Jónasar. Alveg stórkostlegur kafli úr massafínni bók. En ég er ekki eins viss um að nemendur hafi skilið hann eða haft yfirleitt einhverja ánægju af honum.

Jæja, That's it for now.

P.S. Kæru nemendur, ef þið slysist inn á þetta blogg, þá er þetta heimaverkefni handa ykkur. Gjöra svo vel að snara þessum texta yfir á íslensku. :)Árni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9141850018341229945.post-69071523181917281702007-07-10T04:21:00.000-07:002007-07-10T05:02:17.232-07:00Síðbúið póstkortHæ!

Þá er ég mættur aftur eftir útlönd og Eyjafjörð. Montpellier fannst mér flott. Gamlar, þröngar götur finnast mér einkar sjarmerandi. Það var einstaklega gaman að ráfa þessar götur og finna falleg hús, forvitnilegar búðir og framandi veitingahús. Og hundaskíturinn, sem Siggalára hafði hótað að yrði við hvert fótmál, var fáséður. Það var sumsé skoðað, verslað og borðað. Ekki vissi maður alltaf hvað maður var að panta á veitingahúsum, t.d. ákvað ég að vera grand á því og panta mér nautasteik, en fékk í staðinn hrúgu af hráu nautahakki. Nammi innan gæsalappa. Annars fórum við tvisvar á ströndina (ég er enn að flagna) og einn daginn fórum við til Avignon. Veðrið var oftast stuttbuxna og aldrei rigndi að neinu ráði. Krakkarnir stóðu sig líka með stakri prýði og það var ekkert mál að ferðast með alla fjölskylduna. Næst ætlum við Siggalára samt að fara bara tvö, svo hægt sé að sitja lengur að sumbli og fara í leikhús, óperuhús og þess háttar.

Hlökkum til að sjá ykkur,
Árni og fjölskyldaÁrni Friðrikssonhttp://www.blogger.com/profile/14721363171875961737noreply@blogger.com2